Vídeó er af flestum talið áhrifaríkasta efni til að styrkja ímynd vörumerkis og ná athygli í fréttaveitum samfélagsmiðla.
Heili okkar er hannaður til að laðast að myndefni og hreyfimyndum sérstaklega. En vídeóefni er líka erfiðast framleiðslu og oft dýrt.
Tvær leiðir eru færar til að birta vídeó á eigin miðlum eða samfélagsmiðlum, sem þó þurfa ekki að útiloka hvor aðra.
Sú fyrri er að hlaða efninu beint inn eigin vef eða á samfélagsmiðlana (e. native hosting). Sú leið hefur þann kost að miðlarnir hygla því sérstaklega með meiri dekkun og þau fá sjálfvirka spilun í fréttaveitunni á miðlum eins og Facebook og Twitter.
Hin leiðin er að nýta mátt Youtube.
Youtube er gríðarlega öflugur miðill; ekki aðeins sem efnisveita heldur einnig sem samfélagsmiðill og leitarvél, en Youtube er næststærsta leitarvél á eftir Google (enda í eigu Google).
Það er auðvelt að setja upp reikning og kerfið leiðir mann vel áfram - aðalhöfuðverkurinn er hugmyndavinnan og framkvæmdin.
Nýttu vel alla möguleika sem Youtube hefur upp á að bjóða. Skrifaðu góðar lýsingar með tenglum á önnur, tengd vídeó og auðvitað yfir á vefinn þinn. Notaðu einnig #myllumerki til að ná meiri dekkun og betri árangri í leitarniðurstöðum.
Deildu myndböndunum í gegnum samfélagsmiðla
Youtube myndböndum er auðvelt að deila á öðrum samfélagsmiðlum eins og Facebook, Twitter og LinkedIn. Vertu viss um að birta vídeó þín á öllum miðlum sem þú notar, til dæmis á eigin vef og í fréttabréfum.
Bestu miðlarnir til að deila vídeóum eru Facebook, LinkedIn, X, Instagram - TikTok er hratt stækkandi fyrir ákveðna markaði.
Þegar vídeóinu hefur verið póstað er gott ráð að afrita hlekkinn á vídeóið og deila því áfram til áhugasamra með skilaboðum eða hreinlega í tölvupósti - og hreinlega biðja góðfúslega um viðbrögð við því!
Best er að gera það strax eftir birtingu, því ef vídeóið fær fljótt viðbrögð fær það skor hjá reikniritum miðlanna, sem eykur dekkun og dreifingu.
Kostirnir við Youtube eru meðal annars að það er ein stærsta efnisveita og leitarvél í heimi, sem vinnur vel í Google leitarniðurstöðum, það er auðvelt að deila efni þaðan á aðra samfélagsmiðla og ef þér tekst að gera áhorfandann að áskrifanda geturðu sent honum annars konar efni í tölvupósti í áskrift.
Textun er mikilvæg
Vídeó fær fólk til að staldra við í skrollinu í veitunni sinni - en ef það skilur ekki strax um hvað vídeóið er skrollar það einfaldlega áfram. Það er því mikilvægt að hafa vídeóefnið textað, því flestir eru með slökkt á hljóði.
Fjölmargar þjónustur og lausnir eru til að útbúa textaskrár úr hljóðskrám með einföldum hætti, en illu heilli er það ekki í boði fyrir íslensku ennþá. Það er því best að hafa vídeóin stutt og handskrifa textann inn í klippiforritinu.