Hver segir að þú þurfir endilega að velja? Besta leiðin er einmitt að nýta sér styrkleika allra miðlanna, sem sé að birta efnið á þeim öllum.
Þetta er hægt að gera með nokkrum leiðum. Aðalatriðið er að birta efnið fyrst á eigin vef ef hann er fyrir hendi, en endurbirta svo á Medium og/eða LinkedIn 1–2 vikum síðar.
Það er gert til að Google fái tíma til að skrá uppruna efnisins á þitt lén, en ekki LinkedIn eða Medium, og koma í veg fyrir að þér verði „refsað“ af Google fyrir tvöföldun á efni. Ef Google á í erfiðleikum með að raða sama efni á ólíkum vefsvæðum eftir mikilvægi fyrir leitendur getur það bitnað á leitarniðurstöðum.
Það má hugsa sér allavega þrjár leiðir til að útfæra þetta:
1: Endurbirta efnið í heild sinni á LinkedIn og/eða Medium
Til að Google skilji að uppruni efnisins er á þínu léni og umbuni því í leitarniðurstöðum, þarf í fyrsta lagi að bíða í nokkra daga með endurbirtingu, og í öðru lagi að setja hlekk í lok greinar á upprunalegu útgáfuna, með skýringu um að efnið hafi fyrst birst þar.
Með þessu færðu öfluga baktengla frá stórum miðlum, sem styrkir vefinn þinn. Þú eykur líka líkur á að forvitnir lesendur á Medium eða LinkedIn skoði vefinn þinn og það sem þú hefur að bjóða.
Medium býður möguleika á að flytja inn efni beint með tengli af öðrum síðum og setur sjálfvirkt inn hlekk á upprunalegu greinina. Þetta er fljótleg og þægileg leið.
2: Sama efnið með nýrri útfærslu
Þú gætir til dæmis skrifað nýjar fyrirsagnir, inngang og valið nýtt myndefni, til dæmis bætt við vídeói sem inngang í upphafi greinar. Með þessu eykurðu dreifingu efnisins og líkur þess að Google raði einnig efninu ofarlega þótt það hafi birst annars staðar fyrst. Google elskar líka vídeó.
3: Birta hluta efnisins með hlekk yfir upphaflega grein
Ef greinin er mjög löng og ýtarleg getur verið skynsamlegt að endurbirta aðeins hluta hennar á Medium og LInkedIn. Ef greinin er góð og heldur lesanda til enda eru góðar lýkur á að lesandinn smelli á hlekk til að lesa greinina til enda á þínum vef, þar sem þú ert við stjórnvölinn.
Að lokum stendur ekkert í vegi fyrir því að nýta miðlana á mismunandi hátt, sem sagt að birta annars konar efni á fyrirtækisvefnum en þú birtir á LinkedIn eða Medium.
Ein leið gæti verið að birta markaðsblogg á eigin vef sem leiðir kaupanda áfram á vegferð sinni, en nýta Medium og/eða LinkedIn til að skrifa forystuefni (e. thought leadership content) um eigin geira eða fagtengt efni, hvert stefni í framtíðinni og fræðilegar hugleiðingar, sem getur styrkt persónulega mörkun.