Blogg taka á sig mismunandi form, en reynslan hefur sýnt að eftirfarandi fimm útfærslur virka best og eru aftur og aftur notaðar:
i) „Hvernig á að ..?“ (e. how-to posts)
Þessi tegund blogga reynir að grípa nákvæmlega spurningar sem slegið er inn í Google: „Hvernig á að …?“, „Hvernig er best að …?“, „Hvernig get ég…?“, „Hvað er..?“- og svo framvegis.
Leitarhegðun fólks hefur mikið breyst á síðustu árum. Í dag hafa einmitt leitarstrengir sem innhalda heilar spurningar orðið mun algengari. Reiknirit leitarvéla hafa tekið mið af því og umbuna efni sem miða á slíkar spurningar.
Kannski er leitarhegðun á íslensku með aðeins öðrum hætti, en þetta er þó sveifla sem þarf að hafa í huga, sérstaklega fyrir alþjóðafyrirtæki.
ii) Listapóstar
Listapóstar hafa mikið aðdráttarafl, t.d. „7 leiðir til að klúðra markaðsáætluninni“ eða „5 ráð til að ná niður jólaþyngdinni“. Svona titlar einfaldlega svínvirka.
Líkleg ástæða gæti verið sú að upptalning gefur í skyn skýrar leiðbeiningar, „skref-fyrir-skref“ um lausn afmarkaðs verkefnis. Netnotendur vilja nýta tíma sinn vel og stytta sér leiðir.
Mikilvægt er að nota tölustafi í fyrirsögn, ekki bókstafi (s.s. ekki „Sjö leiðir til að….“) - það dregur ekki augað eins vel að.
iii) Efni í deiglunni (e. „newsjack posts“)
Stundum getur verið sterkt að stökkva á efni sem rýkur upp í umræðunni, til að komast í leitarniðurstöður fyrir tiltekið efni. Til að það heppnist vel er mikilvægt að vera snögg(ur) til og vanda póstinn vel, bæði að efni og formi - þannig er líklegast að Google umbuni þér.
Einnig getur verið klókt að koma efninu á framfæri á umræðuvefjum eins og Quora og Reddit - en gerðu það smekklega, annars verður þér refsað.
Gallinn við slíkt efni er að það er ekki langlíft og erfitt að endurnýta það og uppfæra. Þetta er nánast einnota efni. Það þarf því að vega vel og meta hvort ávinningur sé vinnunnar virði.
iv) Myndskýringar (e. infographics)
Myndskýringar haka við mörg box þegar kemur að þörfum leitenda á netinu. Heilinn á auðveldara með að taka inn upplýsingar í gegnum myndmál, reyndar margfalt hraðar en texta.
Vandlega hönnuð myndskýring getur gefið mikilvæg svör hratt og vel - og það er það sem netnotendur vilja.
Einnig er einfalt að deila áfram myndskýringum, t.d. í gegnum samfélagsmiðla. Ókeypis lausnir eins og Canva gera hverjum sem er auðvelt að hanna eigin myndskýringar.
Myndskýringar er þó mikilvægt að styðja við með textaefni, sem hjálpar Google að skilja hvað myndin sýnir.