Hraði vefsíðna skiptir miklu máli fyrir leitarvélabestun. Google tekur tillit til margra þátta við útreikninga sína, en hraði er mikilvægur þáttur, bæði fyrir leit úr tölvum en ekki síður í símum.
Árið 2015 fóru leitir í síma fram úr leitum í tölvum í fyrsta skiptið. Frá 2017 raðar Google síðum eftir símaútgáfum heimasíða. Fyrir þann tíma var það þveröfugt.
Notendaupplifun í síma, ekki síst hleðsluhraði, hefur nú lykilþýðingu varðandi árangur í leitarvélum. Google raðar síðum neðar sem bjóða lélega upplifun í símum.
Þú verður að hafa vef sem býður snarpa hleðslu og þægilega upplifun í öllum vöfrum, í öllum tækjum.
Neikvæð upplifun á vörumerkinu
Önnur ástæða til að hafa vefi hraða, og þar með notendaupplifun sem besta, er að slæm upplifun getur haft mjög neikvæð áhrif á vörumerkjaímynd notenda.
Ef vefurinn virkar ekki sem skyldi gefur það út merki um að starfsemin sé ekki fagleg og ótrúverðug. Hver vill leggja inn kortaupplýsingar sínar hjá slíkum aðila?