-- Article Page

Hönnunarsprettir á Vettvangi

Júlli - Markaðsmál - julli@vettvangur.is

21.8.2024 13:15:01

-- Article Text Block

Styttri þróunartími og minni áhætta

Vel heppnaðar vef- og applausnir skapa samkeppnisforskot fyrir fyrirtæki og stórbæta þjónustu opinberra aðila. En það er ekki sjálfgefið að allar lausnir heppnist eins og vonir stóðu til.

Til að lágmarka áhættu og stytta þróunartíma býður Vettvangur viðskiptavinum sínum kröftuga hönnunarspretti.

Markmið með hönnunarsprettum er að:

  • draga fram áþreifanleg tækifæri eða áskoranir sem fyrirtæki standa frammi fyrir
  • greina þarfir og óskir endanlegra notenda og viðskiptavina
  • vinna drög að útfærðri lausn sem uppfyllir þarfir og rekstrarleg markmið

-- Article Image Block


Honnunarsprettir Vinnustofa

-- Article Text Block

Upphaf og endir er hjá notandanum

Upphafið og endirinn er hjá notendunum, þeim sem er ætlað að nota lausnina. Verkefnið snýst um að leysa vandamál eða uppfylla þarfir þeirra. Þar er upphafið

En endirinn liggur líka hjá notandanum. Það er hann sem sker úr um hvort lausnin skilar því sem hún á að gera. Falli lausnin á prófi notandans hefur hún mislukkast.

Vettvangur beitir notendamiðaðri hönnun (e. Design thinking) í öllum verkefnum sínum, þar sem þarfir og óskir notandans eru í forgrunni.

-- Article Text Block

Þrautreynd aðferðafræði

Hvert verkefni er einstakt og því þarf að sníða nálgunina að hverju verkefni, en sprettir okkar byggja á aðferðafræði sem Google notar við þróun lausna sinna („Google Design Sprints”), sem samanstendur af eftirfarandi liðum :

  • Skilningur
  • Afmörkun
  • Uppkast
  • Ákvörðun
  • Prótótýpa
  • Staðfesting

-- Article Image Block


Honnunarsprettir Design Thinking

Aðferðafræði Google við þróun lausna

Hönnunarsprettir í anda „Google Design Sprints“ eru framkvæmdir á  hönnunarstofum um allan heim - og líka á Vettvangi.

-- Article Text Block

Dæmigerður sprettur fyrir nýja tæknilausn gæti litið út sem svo:

Fasi 1: Skilningur og afmörkun

Fyrsta skrefið er að öðlast sameiginlegan skilning helstu hagsmunaaðila á viðfangsefninu. Til þess þarf að fá öll möguleg sjónarmið, væntingar og skoðanir verkefnisteymis upp á yfirborðið í frjálsu flæði.

Mikilvægt er að notandinn og sjónarmið hans hafi sæti við borðið frá upphafi. 

Í þessari vinnu notum við aðferðir eins og:

  • Viðtöl og kannanir meðal notenda
  • „How Might We”
  • “Blue Sky Thinking”
  • Notendasögur

Fasanum lýkur á samantekt og úrvinnslu þeirra gagna sem urðu til í vinnunni.

-- Article Image Block

Google hönnunarsprettir útskýrðir

Hér er stutt kynningarmyndband frá Interaction Design Foundation þar sem farið er yfir aðferðafræði Google, skref fyrir skref.

-- Article Text Block

Fasi 2: Uppkast að lausn

Í þessum fasa fær hver þátttakandi í vinnustofunni, að spreyta sig á því að teikna upp tillögur að viðmóti fyrir lausn sem byggir á þeirri vinnu sem þegar hefur verið unnin. 

Við vinnum með annars með þessar leiðir:

  • Crazy 8’s - átta teikningar á átta mínútum!
  • Tekið að láni - skoðum lausnir úr öðrum geirum og aðlögum að okkar vanda
  • Forsenduprófanir
  • Kynningar á lausnum og kosningar

Þegar farið hefur yfir allar tillögur er ein kosin til að þróa áfram.

-- Article Quote Block

Hönnunarspretturinn með Vettvangi gekk gríðarlega vel, góð samskipti og hröð vinnubrögð einkenndi þeirra starf. Þar að auki var vefurinn sem þau smíðuðu mjög vel heppnaður. Ég mæli hiklaust með þeim sem samstarfsaðila í litlum sem stórum verkefnum.

Honnunarsprettir Gudjon

Guðjón Elmar Guðjónsson

Markaðsstjóri Netgíró

-- Article Text Block

Fasi 3: Prótótýpa unnin

Hér kemur til kasta hönnuða Vettvangs sem taka við keflinu og nýta þá hugmyndavinnu sem þegar hefur farið fram. Prótótýpa er hönnuð og sett upp á vinnusvæði í Figma sem verkefnisteymi fær aðgang að og getur veitt endurgjöf þar beint í gegn.

Yfirleitt er smíðuð tillaga að fullhannaðri lausn, sem hægt er að vafra um líkt um eiginlegan vef væri að ræða.

  • Hönnuðir Vettvangs taka boltann og hanna frumgerð að endanlegri lausn
  • Verkefnisteymi fær aðgang að vinnusvæði Figma og veitir endurgjöf eftir samkomulagi

-- Article Quote Block

Ég mæli hiklaust með hönnunarsprettinum hjá Vettvangi. Vinnan er faglega unnin frá A-ö og það er vel hlustað á allar ábendingar og athugasemdir á meðan á ferlinu stendur. Hönnunarspretturinn auðveldar áframhaldandi vinnu og flýtir fyrir þessari grunnvinnu sem þarf að eiga sér stað áður en stofnanir láta forrita nýja heimasíðu.

Honnunarsprettir Maria

Maria Neves

Samskiptastjóri Borgarbyggðar

-- Article Text Block

Fasi 4: Endurgjöf 

Áður en eiginleg lokahönnun og forritun hefst er mikilvægt að yfirfara prótótýpu rækilega með helstu hagsmunaaðilum og notendahópum. Það getur verið kostnaðarsamt að hlaupa hratt yfir þennan fasa og uppgötva fyrst þegar lausnin hefur verið gefin út að ekki hefur verið hlustað á allar raddir.

Meðal verkþátta í þessum fasa:

  • Endurgjöf frá helstu hagsmunaaðilum.
  • Prófanir á völdum notendum.
  • Prótótýpa uppfærð samkvæmt endurgjöf.
  • Samþykkt prótótýpa er afhent viðskiptavini til eignar.

-- Article Text Block

Þróun lausna á Vettvangi

Hönnunarspretti lýkur með fullmótaðri útfærslu á endanlegri lausn. En þá er verkefnið rétt að hefjast. Við tekur eiginleg smíði lausnarinnar, sem felur í sér lokahönnun á öllum eigindum, fram- og bakendaforritun og tengingum milli kerfa.

Vettvangur hefur á að skipa reynslumiklum forriturum sem hafa smíðað nokkrar af öflugustu veflausnum landsins fyrir samstarfsaðila eins og Domino’s, Lyfju, VR, Heilsuveru, Innnes, HS Orku - og lengi mætti telja.

 

Hans Júlíus Þórðarson