Upplýsingarleit á netinu einkennist af mikill óþolinmæði - svör þurfa að fást sem allra greiðlegast.
Öðru máli gegnir um efni þar sem ekki er verið að gefa einföld svör heldur bjóða dýpri umfjöllun eða afþreyingu, eins og margir hlaðvarpsþættir gera. Notandinn er þá kominn í aðrar stellingar og er ekki að leita hratt að hagnýtum upplýsingum.
Það hentar alls ekki öllum að horfa á myndbönd til að sækja sér upplýsingar, ráð eða leiðbeiningar.
Ástæðan er sú að mynd- og hljóðefni er ekki skannanlegt. Notandi getur ekki skannað efnið hratt yfir til að fullvissa sig um að efnið gagnist sér, eða til að finna nákvæmlega þær upplýsingar sem hann leitaði að.
Slíkt er miklu auðveldara með texta sem er hámarkaður fyrir auðvelda skönnun.
Vídeó útheimtir einfaldlega meiri tíma af fólki til að læra um sama magn af texta. Ef vídeó er eina leiðin til að læra um viðfangsefnið getur notandinn jafnvel stuðast og leitað annað eftir upplýsingum.
Þegar myndbönd eru útbúin fylgir því alltaf einhver textagerð í formi handrits. Það er því ekki mikill aukakostnaður eða vinna að útbúa veftexta sem nýtir efni úr handritinu.
Textun myndbanda er mikilvæg
Það er óskynsamlegt að bjóða vídeó sem ekki er textað, hvort sem er á þínum eigið vef eða á Youtube.
Margir notendur horfa á vídeó í aðstæðum þar sem ekki er hægt að hafa hljóð upphátt, til dæmis í vinnu, og ekki hafa allir heyrnatól endilega við höndina.
Textað efni skilar upplýsingum betur til skila, jafnvel þótt hljóðið sé einnig notað.