Sameiginlegur skilningur
Vinna sem þessi hjálpar öllum hagsmunaaðilum sem koma að þróunar lausnarinnar með beinum eða óbeinum hætti að öðlast sameiginlegan skilning á því verkefni sem framundan er.
Það er mikilvægt að skilgreina vel hvað fellur þar undir og hvað ekki, og fá alla að sama borði.
Vel gerð prótótýpa getur líka hjálpað gagnvart hikandi hagsmunaaðilum og eytt áhyggjum af því að útkoman muni valda vonbrigðum. Það er til dæmis nokkuð algengt að þeir sem fara fyrir tilteknum deildum innan fyrirtækja óttist að fá ekki sitt pláss og sýnileika á nýjum vef.
Myndræn útskýring er áhrifaríkust
Reynslan hefur sýnt að langar og ítarlegar þarfagreiningar upp á margar blaðsíður geta valdið misskilningi og töfum, en prótótýpa þar sem meginlínur í hönnun og virkni liggja fyrir er miklu auðveldara að vinna eftir og þróa áfram.
Myndræn framsetning er miklu áhrifaríkari til að draga fram vilja og óskir þínar, sem og fyrir okkur til að sýna þeim fram á hvaða leiðir er hægt að fara.
Sparar tíma og peninga
Prótótýpa hjálpar þróunarteymum að skilgreina lausnina, brjóta hana niður og kortleggja hvernig þau komast á áfangastað - sem gerir verk- og kostnaðaráætlun nákvæmari. Sem fyrr segir getur verið kostnaðarsamt að gera stórfelldar breytingar eftir að vefurinn hefur verið gefinn út.
Innsýn í vinnubrögð stofunnar
Vinnusprettur vefstofu við prótótýpu gefur viðskiptavini innsýn í hvernig stofan vinnur, gæði vinnubragða, tæknigetu og hvernig samskiptin muni verða þegar verkið hefst fyrir alvöru.
Traustur grunnur fyrir næstu ákvarðanir
Prótótýpan skýrir ekki einungis framtíðarsýnina í glæsilegu viðmóti heldur byggir hún grunn undir allar ákvarðanir sem framundan eru og hjálpar við að bera kennsl á hindranir sem geta orðið á vegferðinni.