Pétur og teymi hans fóru á stúfana vorið 2021 í leit að vefstofu sem gæti blásið lífi í stafræna þróun stofnunarinnar, með nýjum vef og þjónustulausnum. Litið var sérstaklega til fyrri verkefna, tæknilegrar getu og mikillar reynslu af notendamiðaðri hönnun.
Vettvangur var fenginn til að halda hönnunarsprett þar sem allar hugmyndir voru dregnar fram, en mjög vönduð og ítarleg þarfagreining sem stafrænt teymi Hugverkastofunnar hafði unnið áður innanhúss nýttist einnig mjög vel.
Í þarfagreiningunni voru allir starfsmenn virkjaðir til að draga fram þarfir, hugmyndir og óskir, auk þess sem fundað var með fulltrúum nokkurra stærstu viðskiptavina stofnunarinnar.
Sprettinum lauk með gerð prótótýpu af fullgerðum vef, sem endurspeglaði kröfur Hugverkastofunnar og forgangsröðun þróunar fyrir fyrsta fasa.
Mikil ánægja var með útkomu sprettsins og í kjölfar verðkönnunar var ákveðið að halda áfram í lokahönnun og þróun með Vettvangi sem bauð gott verð og hraða afhendingu.