Sjálfsafgreiðslukerfi eru opin og til reiðu allan sólarhringinn, hvar sem fólk kýs að vinna, á skrifstofunni eða heima hjá sér.
B2B færist nær B2C
Kaupendur á B2B markaði sem gera sín viðskipti í gegnum vefverslanir eða sjálfsafgreiðslulausnir gera orðið kröfu um sömu notendaupplifun og þeir eiga að venjast í vefverslunum á neytendamarkaði. Það hafa alþjóðlegir risar eins og Amazon, ASOS (sem Íslendingar þekkja vel) og Netflix sett há viðmið fyrir alla aðra.
Þessi notendaupplifun snýr að atriðum eins og vönduðum vörulýsingum og ítarefni í formi myndbanda eða annars myndefnis. Netnotendur ætlast líka til að hafa aðgang að öflugum leitarvélum sem geta skilað vöru um leitarniðurstöðum beint í körfu og ábendingar um tengdar vörur.
Það hefur sýnt sig að meðmælakerfi geta aukið mjög verðmæti í körfu. 35% af veltu Amazon eða um 50 milljarðar dala, er vegna meðmæla risans til viðskiptavina sinna.
Bein sala til neytenda mun aukast
Uppfærsla veflausna hjá B2B fyrirtækjum þýðir líka að skrefið áfram til endanlegs notanda eða neytanda hefur styst til muna og er rökrétt framhald af þessari þróun. Af hverju ekki að kaupa beint af framleiðanda, ef hann býður sambærilega notendaupplifun og þjónustu - og trúlega á lægra verði?
Með þessu móti geta framleiðendur boðið meira úrval til neytandans og fá meiri gögn og endurgjöf beint frá notanda, sem nýtist til markaðssetningar og vöruþróunar.
Í Covid faraldrinum hafa sumir framleiðendur prufukeyrt þessa söluleið vegna lokanna hjá smásöluaðilum og útgöngubanns vítt um heim.
Þetta útspil framleiðanda og þekktra vörumerkja er líka ákveðið viðbragð við þeirri þróun hjá smásölukeðjum að bjóða ódýrari vörur undir eigin vörumerki í samkeppni við birgja sína.
Þetta er framtíðarmúsík fyrir marga en raunveruleiki fyrir aðra, til dæmis Nike, sem selur vörur sínar í gegnum umfangsmikið net ólíkra endursöluaðila en selur líka beint til neytenda í gegnum vef sinn.
Þessi leið býður vissulega heim hættu á árekstrum við endursöluaðila, en það er þó hægt að útfæra slíkt kerfi þannig að það styrki vörumerkið og nýtist um leið öllum í virðiskeðjunni, sbr. Nike.